föstudagur, maí 30, 2008

Röfl

Finnst ég hálf neydd til þess að skrifa eitthvað.

En ég er búin að vera leiðinlegasta manneskjan síðustu vikur. Það er búið að vera svo mikið að gera í skólanum að ég kem heim og grenja til að losa spennu fyrir næstu átök. Það eru 2 vikur eftir af kúrsinum og maður verður bara að horfa fram.

Reyndar ekki misskilja mig. Það er ekki leiðinlegt í skólanum bara erfitt.

Fréttir vikunar eru þær að Sóldís stóra stelpa er komin með leikskólapláss. Hérna í Danmörku skipta þeir þessu niður í Vöggustofubörn, 1-3 ára, og Leikskólabörn, 3-5(6) ára.
Skvísan verður jú 3 ára í júlí og þarf því að skipta um skóla. Fékk bara bréfið í dag og fékk alveg hnút í magann. Held þetta sé erfiðara fyrir mig en hana, og erfiðara en þegar hún byrjaði í vöggustofu. Finnst eins hún sé á leið út hinn harða heim úr vernduðu umhverfi.
Það fyndna er að leikskólinn hennar heitir Carlsberg :o)

Annars er allt gott að frétta. Eiki alltaf jafn ánægður í vinnunni og lífið gengur sinn vanagang.

1 ummæli:

Steinunn sagði...

Elsku Vigdís ef það hjálpar eitthvað þá er þetta bara í fyrsta skiptið af mörgum þar sem þér á eftir að finnast Sóldís of litil til að skipta. Haukur var útskrifaður úr Melaskóla í dag og ég get ekki séð að hann hafi neitt að gera í Hagaskóla, sem ég flokka sem fullorðinskóla. Maður venst þessu aldrei
steinunn