I know I know
Ég er á lífi.
Bara búið að vera brjálað að gera hjá mér í október... og skrýtið hvernig það er að eftir því sem líður lengra frá því að maður bloggar því minni löngun hefur maður til að blogga... kannast einhver við þetta?
Fór í próf í lok síðustu viku og gekk bæði vel og illa... Þetta er tvískipt próf og fyrri hlutinn var mun betri en seinni. Kemur í ljós um mánaðarmótin.
Er núna komin í barneignarorlof. Tæpar 5 vikur í settan dag og mín er bara að skipuleggja og undirbúa jólin.
En það sem fékk mig til að skrifa blogg er að ég rakst á þetta á YouTube. Man svo hrikalega vel eftir þessum þáttum, og varð meira að segja svo heilluð að ég sendi bréf til Stöðvar 2 og bað þau um að sýna þættina aftur, fyrsta og eina skiptið sem ég hef gert það.
Hann er töffari. Ég ætlaði að giftast honum.
vááá! Flashback dauðans,Shaka Zulu var maðurinn.
SvaraEyðaÉg fór á safn um daginn og þá var heil deild tileinkuð Shaka Zulu og þjóðflokki hans. Þessi brjálæði höfðingi leit vel út í sjónvarpinu í gamla daga, en djö... var hann klikkaður.
SvaraEyða